Lengd: 60 kennslustundir
Verð: 59.900 ISK
Taltímar (fyrstu tvær vikur):
18:00–18:30
mán–fim
2 vikur
Taltímar:
18:00–19:00
mán og fim
4 vikur
Á stigi 1 er byggður upp grunnorðaforði sem miðar að því að fólk geti spjallað um hversdaginn, spurt aðra og svarað. Með því að skrifa dagbók er verið að þjálfa samræður, hlustun, ritun og málfræði. Fólk lærir að segja hvað það var að gera, er að gera og ætlar að gera. Eins lærir fólk að segja hvað þeim finnst gott, fallegt eða gaman að gera og hvað það langar í og langar að gera. Því er mikil áhersla á sagnir og setningagerð. Ef það er ekki sögn, þá er ekki setning! Annar orðaforði tengist nærumhverfinu, heimili, fjölskyldu og mat.
Fyrstu 2 vikurnar eru taltímar 4 sinnum í viku: mánudag til fimmtudags klukkan 18:00–18:30. Eftir fyrstu tvær vikurnar, eru taltímar tvisvar í viku: mánudaga og miðvikudaga klukkan 18:00–19:00.
Til að fá fullt skírteini þarf að skila öllum ritunarverkefnum, klára 75% verkefna á námsvef og mæta í taltíma á netinu.
Forkröfur: Hafa gott vald á lestri og ritun á latneska letrinu.
Allir kennarar Dósaverksmiðjunnar eru með háskólamenntun. Áður en þau byrja að kenna fara þau í gegnum mánaðar þjálfun þar sem farið er í hvernig kenna á á íslensku, hvernig er gott að kenna íslenska málfræði o.m.fl. Allir kennarar Dósaverksmiðjunnar sinna endurmenntun í hverri viku, funda reglulega saman og vinna sem teymi að faglegri þróun sinna kennsluhátta. Með því móti eru tryggð gæði í námi og kennslu.
Lengd: 60 kennslustundir
Verð: 59.900 ISK
Talnámskeið:
17:00–18:00
mán og mið
6 vikur
Meginmarkmiðið á stigi 2 er að bæta við virkan orðaforða sem nýtist við tal, ritun og lestur. Aukið er við málfræðikennslu og setningagerð í samræmi við það. Mikil áhersla er áfram á almennan grunnorðaforða og að orðaforðinn sé virkur í lestri, ritun og tali. Námsefnið er sett saman af sérfræðingum Dósaverksmiðjunnar.
Taltímar eru á mánudögum og miðvikudögum klukkan 17:00–18:00.
Til að fá fullt skírteini þarf að skila öllum ritunarverkefnum, klára 75% verkefna á námsvef og mæta í taltíma á netinu.
Forkröfur: Hafa lokið Stigi 1 eða náð sambærilegri hæfni.
Allir kennarar Dósaverksmiðjunnar eru með háskólamenntun. Áður en þau byrja að kenna fara þau í gegnum mánaðar þjálfun þar sem farið er í hvernig kenna á á íslensku, hvernig er gott að kenna íslenska málfræði o.m.fl. Allir kennarar Dósaverksmiðjunnar sinna endurmenntun í hverri viku, funda reglulega saman og vinna sem teymi að faglegri þróun sinna kennsluhátta. Með því móti eru tryggð gæði í námi og kennslu.
Lengd: 60 kennslustundir
Verð: 59.900 ISK
Talnámskeið:
17:00–18:00
þri og fim
6 vikur
Á stigi 3 er aukið við málfræðikennsluna. Lestrartextar og úrvinnsla þeirra miða að því að halda áfram að læra nýjan orðaforða og að allur orðaforði sé virkur í lestri, ritun og tali. Námsefnið er sett saman af sérfræðingum Dósaverksmiðjunnar. Nemendur þurfa að vera farin að tala nokkuð til að taka þátt í þessu námskeiði.
Taltímar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:00–18:00.
Til að fá fullt skírteini þarf að skila öllum ritunarverkefnum, klára 75% verkefna á námsvef og mæta í taltíma á netinu.
Forkröfur: Hafa lokið Stigi 2 eða náð sambærilegri hæfni.
Allir kennarar Dósaverksmiðjunnar eru með háskólamenntun. Áður en þau byrja að kenna fara þau í gegnum mánaðar þjálfun þar sem farið er í hvernig kenna á á íslensku, hvernig er gott að kenna íslenska málfræði o.m.fl. Allir kennarar Dósaverksmiðjunnar sinna endurmenntun í hverri viku, funda reglulega saman og vinna sem teymi að faglegri þróun sinna kennsluhátta. Með því móti eru tryggð gæði í námi og kennslu.
Lengd: 60 kennslustundir
Verð: 59.900 ISK
Talnámskeið:
18:30–19:30
þri og fim
6 vikur
Töluverð krafa um ritunar- og talfærni á stigi 4. Fjölbreyttir lestrartextar með verkefnum og bætt er við nýjum atriðum í málfræðinni. Ritun byggir meira á sjálfstæðum verkefnum þar sem krafa er gerð um notkun ákveðinna málfræðiatriða sem hafa verið rifjuð upp eða kennd í tímum.
Taltímar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 18:30–19:30.
Til að fá fullt skírteini þarf að skila öllum ritunarverkefnum, klára 75% verkefna á námsvef og mæta í taltíma á netinu.
Forkröfur: Hafa lokið Stigi 3 eða náð sambærilegri hæfni.