Lærðu íslensku í skemmtilegu og skapandi umhverfi.
Námskeið í boði
Bókaklúbbur Dósaverksmiðjunnar

Málfræðikrass

Íslenskunámskeið (A1.1–B2.2)

Íslenska forstig / LESLLA

Netnámskeið

Önnur tungumál

Algengar spurningar
Nafnið á fyrirtækinu er tengt Borgartúni 1 þar sem skólinn er var til húsa á árunum 2012–2021. Þarna var einu sinni dósaverksmiðja.
Dósir innihalda eitthvað sem við neytum eða hægt er að geyma lengi – svolítið eins og tungumál.
Í Dósaverksmiðjunni eru kennd Stig 1, 1AB, 2, 3, 4, 5, 6, 7 og 8 (A1-B2) samkvæmt námskrá í íslensku fyrir útlendinga.
Einnig eru í boði talnámskeið – Tal A, Tal B, og Tal C, sem leggja áherslu á talþjálfun og uppbyggingu orðaforða í stað málfræði.
Þá eru í boði undirbúningsnámskeið á forstigi A1 kennd út frá viðmiðum LASLLIAM. Þau námskeið heita Íslenska A, A2, B, C, D, E og Tal og virkni.
Nýir nemendur þurfa að koma í próf til þess að sjá til þess að rétt námskeið verði örugglega fyrir valinu. Námsmatið tekur u.þ.b. 20-30 mínútur og er skráning afgreidd að því loknu.
Eins ef það er langur tími síðan nemendur voru á námskeiði, þá þarf einnig að koma í próf.
Skólar hafa mismunandi kröfur hvað varðar málfræði og talfærni. Markmið okkar er að nemendur læri sem mest og fái því námskeið við hæfi. Nýir nemendur þurfa því að koma í stöðumat áður en ákveðið er hvaða námskeið hentar best. Það skiptir okkur máli að nemendur læri íslensku, frekar en að fara upp námsþrepin án þess að ná viðeigandi hæfni. Nám við hæfi kunnáttu tryggir mestan námsárangur.
Flest stærri stéttarfélög bjóða upp á a.m.k. 75% endurgreiðslu á námskeiðsgjöldum gegn framvísun kvittunar. Nemendur greiða sjálfir og fara með kvittun til stéttarfélags til að sækja um námsstyrk. Við hvetjum nemendur til að hafa samband við sín stéttarfélög til að fá frekari upplýsingar um kröfur, þar sem reglur geta breyst.
Nemendur sem eru á skrá hjá Vinnumálastofnun (VMST) eiga rétt á að fá tvö námskeið á ári greidd þaðan. Í því tilfelli er nóg að upplýsa skrifstofustarfsfólk um að viðkomandi sé á skrá hjá VMST og við höfum beint samband.
Ef búið er að nýta námskeiðakvóta er í einhverjum tilfellum hægt að fá endurgreiðslu gegn framvísun kvittunar, á sambærilegan hátt og hjá stéttarfélögum.


