

Verði þér að góðu – Borðspil
Stærð: 44×44 cm (prentað á dúk)
Afhent í spilahólk sem hentar til geymslu. Með fylgja spilapeð, teningar og stundaglas.
Verð: 10.900 kr.

Verði þér að góðu – Paraspil
Fjöldi spila: 60 pör / 120 spil
Góð leið til að læra orðaforða og þjálfa á fjölbreyttan hátt. Margar fjölbreyttar spilaleiðir þar sem hægt er að þjálfa eintölu, fleirtölu og öll föll með eða án greinis.
Auðvelt er að bæta eignarfornöfnum og litum við í þjálfuninni.
Verð: 3.500 kr.

Spilasúpa
Fjöldi spila: 120.
Tvö spil í einum pakka. Annars vegar hefðbundið minnisspil.
Hins vegar spennandi spil með þemaspjöldum.
Hentar vel til að læra orðaforða á fjölbreyttan hátt. Gert sem námsefni í íslensku sem öðru/erlendu máli en hentar einnig vel til kennslu á öðrum skólastigum. T.d. spiluðu nemar í HÍ þetta spil með mikilli ánægju og fannst gaman að læra orðaforða á þennan hátt. Eins er þetta tilvalið í grunn- og framhaldsskóla.
Verð: 7.000 kr.
Verði þér að góðu – Vinnubók
24 bls. í lit
Verð: 1.000 kr.

Íslenska frá A til Ö – Paraspil
Fjöldi spila: 54 pör / 108 spil
Góð leið til að læra orðaforða og þjálfa á fjölbreyttan hátt.
Margar fjölbreyttar spilaleiðir þar sem hægt er að þjálfa eintölu, fleirtölu og öll föll með eða án greinis. Auðvelt er að bæta eignarfornöfnum, töluorðum og litum við í þjálfuninni.
Verð: 3.500 kr.
Íslenska frá A til Ö – Vinnubók
42 bls. í svarthvítu (nema kápan)
Orðaforði tengdur heimili og fjölskyldu.
Orðaforðauppbygging og málfræði.
Verð: 1.000 kr.

Orðasúpa
Fjöldi spila: 108
Tvö spil í einum pakka. Annars vegar hefðbundið minnisspil.
Hins vegar spennandi spil með þemaspjöldum.
Hentar vel til að læra orðaforða á fjölbreyttan hátt. Gert sem námsefni í íslensku sem öðru/erlendu máli en hentar einnig vel til kennslu á öðrum skólastigum. T.d. spiluðu nemar í HÍ þetta spil með mikilli ánægju og fannst gaman að læra orðaforða á þennan hátt. Eins er þetta tilvalið í grunn- og framhaldsskóla.
Verð: 7.000 kr.

Allt mitt – Paraspil
Fjöldi spila: 35 pör / 70 spil
Öll orð eru fullbeygð. Spilið er gott að nota til
að þjálfa fallstýringu, eignarfornöfn og orðaforða.
Margar fjölbreyttar spilaleiðir!
Verð: 3.500 kr.

Fallaspilið
Tvö spil, tvö þyngdarstig. Með fylgir stundaglas.
Með þessu spili er fallstýring einfölduð og hjálpar nemendum að hugsa í klösum í stað þess að hugsa um hverja sögn eða hverja forsetningu. Spilið nýtur mikilla vinsælda nemenda og kennara því þetta greiðir úr og hjálpar til að einfalda reglur um fallstýringu.
Fólk lærir leiðarminni og vinnur út frá örfáum atriðum sem þarf að læra og annað fellur þá í þann flokk sem ekki þarf að læra.
Verð: 7.500 kr.

Klukkuspilið
Stærð: 44×44 cm (prentað á dúk)
Afhent í spilahólk sem hentar til geymslu.
Með fylgja spilapeð, teningar upp í 6 og teningur upp í 12.
Spilið hentar mjög vel til að kenna fólki að tala um tíma á íslensku, en einnig er gott að blanda öðrum spilum við aðgerðirnar. T.d. spilin Verði þér að góðu, að reiturinn sem lent er á, þar er dregið spil. Dæmi: Klukkan níu ætla ég að borða fisk.
Eða nota Allt mitt spilin. Dæmi: Klukkan níu ætla ég að hitta afa minn. Þannig er hægt að æfa klukkuna á fjölbreyttari hátt.
Verð: 9.900 kr.
Tröllin á Vestfjörðum – Bók
32 bls.
Myndskreytt lestrarbók í kennslu eða til yndislesturs byggt á þjóðsögunni um Tröllin á Vestfjörðum. Allar opnur eru myndskreyttar með texta fyrir neðan. Mjög metnaðarfullt verkefni sem við erum mjög stolt af!
Verð: 3.500 kr.