Ef þið komist ekki í tíma, vinsamlegast hringið eða sendið sms í síma 821-7163 eða sendið tölvupóst á info@thetincanfactory.eu og látið vita. Ekki gleyma að biðja um heimavinnu vegna fjarveru.
Hluti af umhverfisstefnu Dósaverksmiðjunnar er að við förum úr útiskóm áður en við komum inn í skólann. Ykkur er velkomið að koma með ykkar eigin inniskó til að vera í skóm inni.
Á kóvíð-tímanum sáum við að hrein borð skipta miklu máli í kennslunni. Við biðjum því þá nemendur sem koma fyrst í tíma að þrífa borðin með sápuvatni sem er í brúsum í skólastofunum.
Það er stranglega bannað að reykja fyrir framan skólann og aðrar byggingar. Vinsamlegast farið yfir í trén fyrir framan skólann eða á bílastæðið til vinstri við skólann og reykið þar.
Kaffi og te kostar 200 krónur fyrir daginn. Við bjóðum líka upp á kaffikort á 1000 krónur fyrir 10 kennsludaga og hægt er að kaupa á skrifstofu (100 kr fyrir einn dag).
Við flokkum allt rusl. Við biðjum nemendur að flokka með okkur og erum með flokkunartunnur fyrir pappír, plast, dósir og flöskur, mat og óflokkanlegt rusl. Ef þú ert ekki viss hvar þú átt að henda rusli, fáðu upplýsingar á skrifstofu eða hjá kennara.
Útskrift: við sláum upp fjölmenningarveislu á útskrift og nemendur koma með mat, nammi, drykki o.s.frv. byggt á upskrift frá þeirra heimalandi og deila með samnemendum sínum. Ekki koma með einnota diska eða glös, það er til fjölnota í skólanum.
Útskrift: Teknar eru myndir af nemendum og kennara á útskrift sem eru settar á facebook. Vinsamlegast látið okkur vita ef þú vilt ekki vera með á mynd. Best er að láta vita áður en myndir eru teknar, en ef þið sjáið mynd af ykkur sem ykkur líkar ekki getið þið sent okkur skilaboð og við eyðum myndinni strax.
Það er allt í lagi að vera með mat og drykk í kennslustofunum en vinsamlegast passið að það sé hreint eftir ykkur.
Athugið að börn og unglingar sem ekki eru skráð í skólann eiga ekki að koma með forráðamönnum sínum í skólann.
Vinsamlegast takið hljóðið af farsímum þegar komið er inn í kennslustofuna. Síma skal ekki nota í kennslu.
Á Íslandi fer klósettpappír í klósettið, ekki í ruslaföturnar.