Hjá Dósaverksmiðjunni leggjum við áherslu á rólegt og gott andrúmsloft, byggt á virðingu og samvinnu. Allir okkar hópar eru fjölmenningarlegir og kennt er á íslensku. Á námskeiðunum blandast íslensk menning fjölmenningu á fallegan og fjölbreyttan hátt.

Dósaverksmiðjan / The Tin Can Factory starfar undir framhaldsfræðsluleyfi frá menntamálaráðuneytinu. Þar erum við skráð undir fyrirtækjanafninu Tungumálaskólinn ehf.
Öll okkar námskeið og tímar á bak við þau gilda því ef sótt er um íslenskupróf vegna ríkisborgararéttar eða verið er að sækja um atvinnu- og dvalarleyfi hjá ÚTL.
Við kennum eftir Evrópska tungumálarammanum (CEFR) og heita þau námskeið Stig 1 – 8 ásamt Tali A, B og C.
Við kennum einnig forstig eftir LASLLIAM tungumálarámmanum, en það er nám sem er á undan CEFR. Þau námskeið eru fyrir fólk sem vill byrja rólega í íslenskunáminu og læra vel framburð og orðaforða áður en byrjað er á mikilli málfræði. Eins eru þessi námskeið fyrir fólk sem ekki hefur latneska letrið í sínu móðurmáli. Þau námskeið heita Íslenska A, A2, A3, B, C, D, E og Íslenska Tal og virkni.
Þá er móðurmálskennsla í arabísku, persnesku, nígerískri ensku og sómalísku eftir þörfum. Önnur tungumál sem eru kennd reglulega eru m.a. spænska og ítalska.
Í haust byrjum við einnig á matreiðslunámskeiðum í glænýju kennslueldhúsi og þar verður hægt að læra að elda alls konar fjölþjóðlega rétti og fleira spennandi.
Frá árinu 2008 hefur einungis verið kennt á íslensku í Dósaverksmiðjunni. Því er lögð jöfn áhersla á að þjálfa virka hlustun og tal, rétt eins og að þjálfa lestur, ritun og málfræði.
Allir kennarar fá þjálfun í að kenna á íslensku og hjá Dósaverksmiðjunni hefur verið gefið út sérhæft námsefni fyrir öll stigin til að tryggja sem bestan árangur. Hlustun og skilningur er grunnur þess að eiga í samskiptum, því skipir miklu máli að kenna og læra íslensku á íslensku.
Flest sem eru að læra íslensku sem annað mál tala hana ekki í vinnunni. Flest sem eru að læra íslensku geta ekki þjálfað sig í tali í íslensku umhverfi, m.a. vegna þess að strax er farið að tala ensku við þau – eða þau þekkja fáa íslenskumælandi til að fá þessa þjálfun.
Til að ná tökum á íslensku máli þarf að skilja talað mál, geta spurt og skilið svarið og skilja spurningar til að geta svarað. Það er mikill munur á því að geta lesið og skilið texta og þess að hafa virkan orðaforða í samtali.
Þá eru mikil tengsl á milli þess að skrifa samfelldan texta á íslensku og framfara í tali, ritun samfellds texta er því mikilvægur þáttur tungumálanáms. Fjölbreytt nálgun í kennslu og mikil áhersla á alla færniþætti í námi og kennslu tryggja betri árangur nemenda Dósaverksmiðjunnar.
Á öllum námskeiðum er símat. Þar eru ýmis atriði metin á hverjum degi, svo sem þátttaka í tímum, skil á heimavinnu, o.fl.
Þá lýkur öllum námskeiðum með prófi. Á grunni prófs og almennrar virkni og árangurs nemanda á námskeiði er ákveðið hvert framhaldið er. Hjá Dósaverksmiðjunni er færni í tali einnig metin þegar lögð er tillaga fram um framhaldsnámskeið.
Það er mikilvægt að nemendur fái alltaf nám við hæfi, of þungt námskeið hægir á almennum framförum. Með þessu móti reynum við að tryggja að kennarar fái nemendahóp sem er á svipuðum stað í náminu til að tryggja gæði kennslunnar. Það getur enginn kennari kennt nemendum á of breiðu getustigi svo vel sé. Sé nemandi á of þungu námskeiði hægir hann líka á kennslunni og því fá aðrir nemendur ekki það gæðanám sem þau eiga rétt á.
Kennarar eru í föstu starfi hjá Dósaverksmiðjunni, hvort sem þau fá fastráðningu eða vinna sem verktakar. Allir kennarar fá mánaðar þjálfun áður en þau hefja kennslu, læra inn á námsefnið, kennsluaðferðir og það að kenna á íslensku.
Kennt er í fjórar vikur á morgnana, nema föstudaga, það eru vinnudagar kennara þar sem farið er yfir vikuna og áframhaldandi skipulag. Tíminn er oft nýttur í námsefnisgerð og almenna endurmenntun.
Fimmta hver vika er vinnuvika og þá funda kennarar um næstu lotu, sinna endur- og símenntun, vinna að námskeiðsáætlunum og námsefni.
Á kvöldin er kennt í 6 vikur en einu sinni í viku funda allir kennarar saman til að fara yfir það sem er framundan, mæta því ef það er eitthvað sem þarf að leysa og fara bæði í efni, aðferðir og hugmyndafræði við kennslu.
Sjöundu hverja viku er vinnuvika hjá kvöldkennurum, þá er næsta lota skipulögð, unnið að endur- og símenntun og farið í efni, aðferðir og kennslufræðilegar hugmyndir.
Hjá Dósaverksmiðjunni vinna að jafnaði í kringum 40 manns af 9-10 þjóðernum. Yngsta í starfsliðinu er 18 ára og elsta er 70 ára.
Dósaverksmiðjan hlaut Evrópumerkið árið 2025 fyrir fyrir verkefnið „Læsi er lykill að lýðræði“. Evrópumerkið var því veitt fyrir LESLLA deildina og þróun náms og kennslu eftir LASLLIAM tungumálarammanum.
Námið er fyrir fólk sem ekki hefur latneska letrið í sínu móðurmáli og þau sem vilja byrja hægt og rólega í íslenskunáminu. Hjá Dósaverksmiðjunni er LESLLA-deild bæði kvölds og morgna og að jafnaði eru 1000 nemendur á ári í henni.

Hluti kennara sem vinna við LESLLA-deild Dósaverksmiðjunnar.
Stór hluti starfsemi Dósaverksmiðjunnar er námsefnisgerð. Sumt af því efni er útgefið en annað býður útgáfu vegna skorts á fjarmagni til útgáfu námsefnis en er prentað og notað hjá Dósaverksmiðjunni.
Námsefni gefið út af Dósaverksmiðjunni
Námsefni er skrifað af sérfræðingum Dósaverksmiðjunnar og gefið út af Miðstöð menntunar og skólamála.