Önnur tungumál

Byrjar 7. október

Byrjar 22. október

Mörg börn og ungmenni frá Víetnam alast upp á Íslandi og tala víetnömsku við fjölskyldu og vini en lestrar- og ritunarkunnátta er takmörkuð eða lítil.

Á þessu námskeiði verður byggð brú frá víetnömsku talmáli til betri lesturs og ritunar. Sú kunnátta styður víetnömsk börn í að viðhalda jákvæðu viðhorfi og betri tengingu við víetnamskt tungumál og menningu. Með betri færni í víetnömsku fá þau líka betri tæki til að læra íslensku.

Áhersla verður á að blanda saman lestri, ritun í bækur, stafsetningu, tali, leikjum og fjölbreyttum para- og hópverkefnum. Lesnar verða sögur, efni um víetnamska menningu ásamt verkefnum á neti. Í fyrsta tíma verður kunnátta nemenda metin, þar sem þau lesa og skrifa fyrir kennara. Þetta er ekki próf, heldur er þetta til að finna styrkleika nemenda svo hægt sé að aðlaga námsefni og kennslu að getu nemenda.

Kennari: Huy Minh Tran  
Reyndur háskólakennari frá Víetnam með víðtæka reynslu af kennslu, fræðilegum rannsóknum ogleiðsögn nemenda.