Lengd: 24 kennslustundir
Verð: 59.900 ISK
Kvöldnámskeið:
17:30–19:30
mið
8 vikur
Byrjar 7. október
Spennandi námskeið í spænsku, þar sem áhersla er á virkni og þátttöku og að skemmta sér við að læra nýtt tungumál. Á námskeiðinu er farið í grunnatriði í spænsku með áherslu á að byggja upp setningagerð og byrja að nota allt sem kennt er í samræðu. Einu sinni á námskeiði er eldaður réttur byggður á uppskrift frá landi þar sem töluð er spænska. Kennt er einu sinni í viku og nemendur fá alltaf heimavinnu.
Kennari er Ana Martha Helena spænskukennari og móðurmælandi á spænsku og talar einnig ensku og íslensku. Kennsla fer fram á spænsku eins og kostur er.
Ana Martha hefur kennt spænsku hjá Dósaverksmiðjunni síðan 2011.
Lengd: 30 kennslustundir
Verð: 30.000 ISK
Dagnámskeið:
15:30–17:30
mán og fim
8 vikur
Athugið: Hægt er að nýta frístundastyrk fyrir námskeiðið fyrir börn upp að 18 ára aldri.
Byrjar 22. október
Mörg börn og ungmenni frá Víetnam alast upp á Íslandi og tala víetnömsku við fjölskyldu og vini en lestrar- og ritunarkunnátta er takmörkuð eða lítil.
Á þessu námskeiði verður byggð brú frá víetnömsku talmáli til betri lesturs og ritunar. Sú kunnátta styður víetnömsk börn í að viðhalda jákvæðu viðhorfi og betri tengingu við víetnamskt tungumál og menningu. Með betri færni í víetnömsku fá þau líka betri tæki til að læra íslensku.
Áhersla verður á að blanda saman lestri, ritun í bækur, stafsetningu, tali, leikjum og fjölbreyttum para- og hópverkefnum. Lesnar verða sögur, efni um víetnamska menningu ásamt verkefnum á neti. Í fyrsta tíma verður kunnátta nemenda metin, þar sem þau lesa og skrifa fyrir kennara. Þetta er ekki próf, heldur er þetta til að finna styrkleika nemenda svo hægt sé að aðlaga námsefni og kennslu að getu nemenda.
Kennari: Huy Minh Tran
Reyndur háskólakennari frá Víetnam með víðtæka reynslu af kennslu, fræðilegum rannsóknum ogleiðsögn nemenda.
