Íslenskunámskeið
(A1.1–B2.2)
Fjölbreytt námskeið frá A1 – B2.2.
Áhersla á að þjálfa lestur og framburð, hlustun, ritun, tal og málfræði. Fjölbreytt námsefni og fjölbreyttar kennsluaðferðir. Sérsniðið efni Dósaverksmiðjunnar fyrir nám og kennslu á íslensku.
Skoða meira
Netnámskeið
Faglega uppbyggður námsvefur með fjölbreyttum verkefnum og taltímum á Zoom.
Nám á neti fer fram í gegnum kerfi Netskólans.
Nemendur fá verkefni vikulega og þarf að ljúka þeim fyrir taltímana sem eru einu sinni til tvisvar í viku á netinu í gegnum Zoom. Verkefnin eru af ýmsum toga. Það eru gagnvirk verkefni þar sem hægt er að fá meldingu um hvað var rétt og hvað ekki. Þau verkefni er hægt að gera eins oft of fólk vill.
Þá eru ritunarverkefni sem er skilað til kennara í gegnum námsvefinn og nemendur fá yfirlesið af kennara og leiðrétta og senda aftur. Einnig eru hlustunarverkefni, lestur og skilningsverkefni. Innifalið í náminu er leikjavefur og sagnbeygingavefur.
Skoða meira
Íslenska forstig / LESLLA
Forstig / LESLLA er fyrir fólk sem ekki hefur latneska letrið í sínu móðurmáli eða fyrir þau sem vilja byrja hægt og rólega í íslenskunámi en byrja strax að tala íslensku. Mikil þjálfun í að lesa, hlusta, skrifa og tala – og byggja upp mikinn orðaforða til að byggja upp góðan grunn fyrir frekara nám.
Skoða meira
Önnur tungumál
Við bjóðum einnig upp á námskeið í öðrum tungumálum en íslensku.
Skoða meira
Matreiðslunámskeið
Matreiðslunámskeið í nýja kennslueldhúsinu okkar eru væntanleg! Fylgist með fyrir frekari upplýsingar.